Samskip hefur um árabil notað H3 laun og H3 greiningar við launavinnslu félagsins.
Nýverið hóf Samskip notkun á H3 áætlunum og ákvað að bæta fleiri einingum við.
Uppsetning er yfirstandandi á H3 mannauð, H3 fræðslu, H3 ráðningum, H3 starfsmannavef og H3 stjórnun sem er nýjasta afurðin í H3 heildarlausninni.
Markmið Samskipa er að annast utanumhald um starfsfólk hérlendis alfarið í H3 auk þess að nýta kerfið til viðhalds á starfsmannaupplýsingum fyrir erlenda starfsemi félagsins.
Samskip eru alþjóðlegt félag sem býður flutninga og tengda þjónustu á sjó, landi og í lofti. Frá stofnun félagsins árið 1990 hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt, bæði með kaupum á öðrum félögum og vegna innri vaxtar.
Samskip eru orðin eitt stærsta gámaflutningafyrirtæki Evrópu og býður félagið upp á heildarþjónustu á Íslandi og í Færeyjum, fjölþátta flutningsþjónustu um alla Evrópu og frysti- og framhaldsflutninga um allan heim. Félagið starfrækir skrifstofur í yfir 20 löndum í þremur heimsálfum og eru starfsmenn um 1.400 talsins.