04.12.2009
H3 mannauðslausnir
H3 er arftaki eldri starfsmannalausna Tölvumiðlunar og var þróað í samstarfi við ýmis fyrirtæki, svo sem Fjarðabyggð, Fjárvakur, Landsbanka og Rafteikningu, sem komu að þarfagreiningum, þróun og prófunum.
Þróun H3 hefur verið með stærstu hugbúnaðarverkefnum fyrirtækisins og hafa fjölmargir starfsmenn komið að því.
Heildarlausn
H3 er heildarlausn í starfsmannamálum, þróuð hérlendis fyrir innlendan markað þar sem horft er til alþjóðlegra strauma í stjórnun og viðskiptafræðum.
H3 samanstendur af eftirtöldum einingum:
Smellið á viðkomandi einingu hér fyrir ofan til að fá nánari lýsingu.
Kostir þess að nota H3 mannauðslausnir eru:
Staðlað kerfi
H3 er staðlað kerfi sem hentar óbreytt þörfum allra fyrirtækja á íslenskum markaði stórum sem smáum. Sveigjanleiki kerfisins gerir kleyft að sérsníða einstaka einingar að óskum notenda auk sérsmíði einstakra eininga.
Aðgangsstýringar
Öflugar aðgangsstýringar kerfisins gera kleyft að stýra aðgangi að gögnum með markvissum hætti, en hægt er að stýra aðgangi að kerfum, kerfishlutum og skjámyndum. Einnig er mögulegt að stýra aðgangi eftir skilgreindu hlutverki (role) eða einstaklingi. Þetta er grundvallaratriði hvað varðar starfsmannavef en einnig hvað varðar aðgengi stjórnenda beint að eigin gögnum.
Rekjanleiki aðgerða
H3 býr yfir fullkomnum rekjanleika á öllum skráningum og breytingum á færslum og gögnum. Allar aðgerðir eru merktar með fingrafari notanda en rekjanleiki aðgerða er mikilvægur öryggisþáttur í kerfum af þessum toga.
Sveigjanleiki
Grundvallaratriði við högun kerfisins er mikill sveigjanleiki því meðal annars er mögulegt að bæta við nýjum skráningarsviðum/gagnasviðum. Þessi sveigjanleiki er mjög mikilvægur til dæmis í mannauðshlutanum þar sem starfsmannastjórar og aðrir notendur eru að vinna með mismunandi upplýsingar, allt eftir eðli starfseminnar.
Samþætting kerfiseininga
Allar kerfiseiningar eru samþættar og þannig er komið í veg fyrir tvískráningar sömu upplýsinganna. Hverja breytingu þarf því aðeins að framkvæma einu sinni.
Gögn flæða milli kerfiseininga, því þær eru mismunandi sýn á sömu gögnin. T.d. eru sömu upplýsingar um starfsmenn aðgengilegar bæði í launakerfi og mannauð og sé þeim breytt í öðru kerfinu, sést breytingin samstundis í hinu.
Uppfærslur
Notendur uppfæra kerfið sjálfir yfir internetið, fylgjast með nýjum útgáfum einstakra kerfiseininga og uppfærslusögu eigin kerfa frá sinni tölvu.
Fjölbreytt virkni
Ýmis virkni og tengingar eru til staðar svo sem tengingar við önnur kerfi, verkferlar (gátlistar), verkefnalistar, villuprófun á bankareikningum, þjóðskrártenging, símaskrártenging ofl.
Tækni
Þriðju kynslóðar forritunarmál eru notuð við hönnun H3 svo sem: (C++), Crystal Reports 9.0, Microsoft .Net lausnir og Oracle. Undirliggjandi Oracle gagnagrunnur og sú tækni sem notuð er í HLaun3, auðveldar mjög samskipti við önnur tölvukerfi.
H3 er hannað með þriggja laga högun. Það þýðir að lítil vinnsla fer fram á vinnustöð notandans sem auðveldar uppfærslur. Þessi högun gerir kleyft að dreifa álagi á fleiri vinnustöðvar hjá stærri fyrirtækjum. Uppbygging kerfisins tryggir því mikinn vinnsluhraða og gerir því kleyft að ráða við meira umfang.
Til Baka