Skip Navigation LinksTölvumiðlun / Vörur / Rekstrar- og tækniþjónusta
09.05.2008 Rekstrar- og tækniþjónusta

Tölvumiðlun býður fyrirtækjum og stofnunum rekstraþjónustu.  Um er að ræða þjónustu sem tekur á öllum þeim atriðum sem fyrirtæki þurfa að huga að í rekstri smárra og stórra tölvukerfa.

Markmið rekstrarþjónustunnar eru að tryggja stöðugleika, gagnaöryggi, hámarksnýtingu og lágmarka kostnað.

Þeir sem reka lítil og meðal stór tölvukerfi rekast gjarnan á ófyrirséðan kostnað, rekstrartruflanir og glötuð gögn en slíkt veldur vantrausti á búnaðinum.  Rekstrarsamningur færir notendum slíkra kerfa vissu um traustan rekstur á tölvukerfinu og dregur úr óvæntum uppákomum sem valda truflun, ekki bara á tölvukerfinu sem slíku heldur á annarri starfsemi sem fram fer á staðnum. Jafnframt er hægt að byggja áætlanir um fjárþörf til reksturs kerfisins á rekstrarskýrslum sem skilað er reglulega.

Fyrsta skref í rekstrarsamningi er úttekt og stöðumat á tölvubúnaði viðskiptavinarins.  Komi í ljós annmarkar eru þeir lagfærðir í samráði við notandann til að kerfið verði stöðugt og traust í rekstri.  Jafnframt er kerfið skrásett, þ. e. skráðir eru allir þeir þættir sem skipta máli varðandi rekstur kerfisins, svo sem fjöldi og tegund tölva,  tegundir prentara,  netbúnaður,  mótöld, hugbúnaður og gagnasöfn.  Allar tengingar og allir reklar.  Kannað er ástand afritunarmála og sannreynt að afritin vinni eins og ætlast er til.  Að lokum er komið upp tengingu við Tölvumiðlun þannig að hægt sé að tengjast kerfinu og fylgjast með ástandi þess og  framkvæma lagfæringar án þess að þurfa að senda mann á staðinn.  Eftirlitskerfi Tölvumiðlunar fylgist síðan með öllum vél- og hugbúnaði sem þarf að vera í gangi allan sólarhringinn og gerir viðvart um leið og þjónustur „fara niður“.

Í rekstrarsamningum er tilgreint þjónustustig, tíðni og lengd reglulegra heimsókna.  Gjald fyrir þjónustuna er jafnað út yfir árið þannig að þó að upp komi erfiðleikatímabil þá þarf það ekki endilega að leiða til kostnaðarauka vegna reksturs tölvukerfisins.  Gert er ráð fyrir reglulegum samráðsfundum með notendum.

Rekstrarsamningurinn getur einnig falið í sér gerð neyðaráætlunar komi til bilana, skemmda, þjófnaðar eða að flytja þurfi starfssemina skyndilega á annan stað.

Mögulegt er að bjóða upp á fjartengingar starfsmanna inn á tölvukerfið.   Internettengingar, rekstur á póstþjónustu, vistun, o.s.frv.

Ef aðstæður í fyrirtækinu eru þannig að ekki er mögulegt að hafa netþjóna staðsetta í eigin húsnæði,  er mögulegt að setja  vélarnar inn í vélasal Tölvumiðlunar og þannig tryggt uppitíma og viðhald.

Við kaup á búnaði getur verið erfitt að sjá hvað hentar best hverju sinni.  Ráðgjafar Tölvumiðlunar hafa áralanga reynslu á þessu sviði og geta gefið góð ráð þegar innkaup standa fyrir dyrum.


Kostir

Traust afritun gagna.  Afritin sannreynd reglulega.

Settar upp vírusvarnir, komið í veg fyrir tjón vegna glataðra gagna og óvirks  búnaðar.

Uppsetning á viðbótarbúnaði af sérfræðingum tryggir bestu not.

Gott aðgengi að þjónustufólki sem þekkir búnaðinn á staðnum.

Skilgreind þjónusta utan venjulegs vinnutíma í neyðartilfellum.

Regluleg skýrslugerð auðveldar fjárhagsáætlanir og endurbætur.

Kostnaðardreifing á rekstri tölvukerfisins.

Tölvupóstþjónusta fyrir starfsmenn viðskiptavinarins.

Leiðbeiningar um notkun búnaðarins og umgengni.

Reglulegar heimsóknir sem nýtast m.a. til þjónustu við einstaka notendur kerfisins.

Samráðsfundir/Atvikaskráning (loggur)


Þjónustan felst í:

Símaþjónustu frá 9:00-17:00

Fjartengingu frá Tölvumiðlun.

Reglulegum heimsóknum.

Neyðarþjónustu utan venjulegs vinnutíma.

Skýrslu- og áætlanagerð.

Til Baka