Skip Navigation LinksTölvumiðlun / Vörur / Heilbrigðislausnir
30.05.2008 Heilbrigðislausnir

Tölvumiðlun hefur um árabil þróað hugbúnaðarlausnir fyrir heilbrigðisstofnanir, þjónustað notendur eigin lausna sem og lausnir annarra.
 
Á árinu 1988 setti Tölvumiðlun upp upplýsingakerfi fyrir sjúkrahús ásamt skrifstofukerfi fyrir ritara. Í framhaldi af uppsetningu upplýsingakerfa sjúkrahúsa hóf Tölvumiðlun markaðssetningu á hinum ýmsu hugbúnaðarkerfum fyrir sjúkrahús.  Kerfin voru kynnt undir heitinu HUS (Heildar Upplýsingakerfi Sjúkrahúsa).
Um var að ræða göngudeildarkerfi fyrir hinar ýmsu deildir sjúkrahúsa ásamt leguskráningarkerfi. Þjónusta tengd heilbrigðisgeiranum var að mestu færð yfir í annað félag, eMR hugbúnað og sameinað starfsemi Gagnalindar hf. og heilbrigðissviðs Hugvits hf.  Árið 2003 var eMR selt TM Software.
 
Helstu verkefni Tölvumiðlunar á sviði heilbrigðislausna eru eftirfarandi:

Kerfi fyrir myndgreiningar (röntgen)
Tölvumiðlun annast sölu og þjónustu hérlendis á myndgreiningarkerfum frá Carestream Health (áður Eastman Kodak) sem notuð er á röntgendeildum stærstu sjúkrahúsa landsins.
 

Til Baka