Skip Navigation LinksTölvumiðlun / Þjónusta
04.12.2009 Þjónusta

Tölvumiðlun hefur það ávallt að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu og veita notendum stuðning í daglegri notkun kerfa félagsins.
 
Þjónustuvefir
Á þjónustuvefjum Tölvumiðlunar má finna fjölmargar gagnlegar upplýsingar auk handbóka fyrir kerfin.  Það er nauðsynlegt að vera skráður notandi til þess að fá aðgang.  Ef þú ert ekki skráður notandi getur þú sótt um aðgang að viðkomandi þjónustuvef hér að neðan.
 
Til þess að auðvelda þér aðgengi að upplýsingum á vefnum þá þarftu aðeins að velja hér til hliðar viðeigandi þjónustuvef.
 
Þjónustugátt
Tölvumiðlun býður einnig þjónustugátt sem gerir fjarhjálp að ákjósanlegri valkosti fyrir viðskiptavini.  Fjarhjálpin byggir á því að viðskiptavinir geta nú beðið þjónustumenn um aðstoð um fjarhjálp og þjónustumaðurinn yfirtekur vél notandans með einfaldari hætti en áður hefur verið unnt.
 
Ekki er þörf á flóknum uppsetningum eða opnun eldveggja, heldur þarf viðskiptavinurinn aðeins að hafa aðgang að interneti.  Það er von okkar að þessi búnaður auki gæði þjónustunnar og einfaldi þjónustu við smærri viðskiptavini.  Oft getur reynst erfitt að leysa málin með símtali því greining verkefna getur verið mjög tímafrek.
 
Vinsamlegast veljið þjónustugátt til að virkja fjarhjálpina.
 

Til Baka