03.12.2009
Námskeið
Tölvumiðlun leggur metnað sinn í að bjóða fyrirtækjum og stofnunum fjölbreytt úrval námskeiða. Á námskeiðunum er tekið á þeim atriðum sem notendur þurfa að kunna til að fullnýta sér möguleika kerfanna. Í boði eru einkanámskeið, fyrirtækjanámskeið, grunnnámskeið og framhaldsnámskeið í öllum kerfum fyrirtækisins.
Mennt er máttur og námskeið skila sér tvímælalaust fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Með því að mennta sig þá öðlast starfsmenn fyrirtækja og stofnana aukna færni, kunnáttu og leikni til að meðhöndla launa- og mannauðsvinnslu hjá sínu fyrirtæki.
Þau námskeið sem eru í boði hverju sinni er hægt að sjá undir liðnum
stundaskrá.
Einnig er hægt að lesa sig til um innihald námskeiðsins með því að skoða
námskeiðslýsingar.
Síðan getur viðkomandi
skráð sig á námskeið og vertu viss um að það verður tekið vel á móti honum.
Til Baka