Skip Navigation LinksTölvumiðlun
Nýjung í H3 Laun - Vinnustaðaskírteini í samræmi við fyrirmynd ASÍ

 
Nýlega tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Öllum atvinnurekendum í hlutaðeigandi greinum ber að sjá til þess að starfsmenn fái vinnustaðaskírteini þegar þeir hefja störf.
 
Á skírteininu þarf að vera mynd af launamanni, nafnið á myndininni þarf að vera kennitala launamanns og er skönnuð inn sem viðhengi á launamanninn. Í H3 Mannauður er hægt að lesa inn myndir á alla í einu að því gefnu að myndirnar séu allar vistaðar á sama stað.
 
Skírteinin má finna í H3 Laun undir Skýrslur/Almennt/Vinnustaðaskírteini. Skírteinin eru ætluð til útprentunar á pappír og mælt er með að þau séu plöstuð.
 
Þeir atvinnurekendur sem þegar eru með starfmannaskírteini sem innihalda sömu upplýsingar og vinnustaðaskírteinin þurfa ekki á vinnustaðaskírteininu að halda.